Hvílík svalheit… og gott lag líka.

Ég er alveg einstaklega góð í því að ,,uppgötva” hljómsveitir ca. ári eftir að þær koma til Íslands, mér er bara algjörlega fyrirmunað að vera hipp og kúl.
Þið ættuð bara að sjá prófahúfuna sem ég er með…
Bara eitt eftir, sem skal massað á þriðjudaginn!

… tókst mér að troða frasanum ,,…en Adam var ekki lengi í Paradís” inn í ritgerð um bólgueyðandi steralyf og ágæti þeirra.

Hugmyndir óskast að góðum frösum/orðum til að troða inn í næstu ritgerðarspurningar á mánudaginn…

Hot: tetracýklín, piperazine og lindane
Not: Andmetabólítar og allir efnaferlarnir tengdir þeim og helv. cefalósporínin sem heita öll næstum því það sama

Hot: Grænt te
Not: Kaffi

Hot: Dökkt gæðasúkkulaði í litlum skömmtum
Not: Bland í poka í kílóavís

Hot: Að verða heimavinnandi ómenntuð húsmóðir með einn kall til að sjá um (fengi mér kannski hund til að hafa meira að gera)
Not: Að vera í prófum í háskólanámi

Lyfjaefnafræði IA á morgun, óteljandi efnabyggingar, nöfn, virkniferlar, ónæmi og aukaverkanir bíða páfagaukautanbókarlærdóms…


Piperazine


Cefpodoxime proxetil

nanibab!

…hann er hress! Og tileinkaður Þuru því hún er orðin hálf-48 ára í dag.

Fyrir viku síðan hélt bekkurinn minn kökugerðarkeppni og var keppt um titlana frumlegasta kakan, fallegasta kakan og bragðbesta kakan. Viagra kakan okkar Hrannar þótti fín og lenti í 2. sæti yfir frumlegustu kökuna:

viagra kök

En við þurftum þó að játa okkur sigraðar fyrir sjálfri legkökunni þeirra Evu, Guðríðar og Ellu:

legkaka

Marengsávaxtarjómapippbomban hjá Maríu og Perlu var svo valin bæði bragðbesta og fallegasta kakan… mmmm.

Prófalestur pínir mig
pirruð sit ég þreytt.
… og botniði nú!

Kæra fólk, ekki láta plata ykkur í það að eyða 5 dollurum í að horfa á þessa mynd nema þið hafið virkilega ekkert betra við ykkar tíma og pening að gera. Ég hef séð þessa mynd auglýsta víða á netinu og mikið um hvað hún sé nú ,,frábær“ og hafi ,,breytt lífi fólks“.
Gefið ykkur frekar 5 mínútur í að lesa hina réttmætu gagnrýni sem kemur fram um myndina á Wikipediu.
Þessi setning lýsir myndinni nokkurn veginn í hnotskurn:
,,”The Secret’s” ideas are nothing more than common sense. Take out the buzzwords and pseudo religious nonsense about what you ‘manifest’ for yourself, ignore the vague prose and you get the message that thinking positively serves you better than thinking negatively.“

Þið þurfið ekki að eyða 5 dollurum og 90 mínútum af lífi ykkar til að gera ykkur grein fyrir því!

Ég sem vísindamaður þoli heldur ekki svona gervivísindi (segulmagnaðar hugsanabylgjur sem við sendum frá okkur og hafa áhrif á heiminn…?) og fullyrðingar um að með jákvæðri og réttri hugsun geti líkaminn látið líffæri á borð við nýru vaxa aftur og læknað sig af krabbameini (kona ein læknaði sig af brjóstakrabbameini á þremur mánuðum með því að neita lyfjameðferð og vera glöð og horfa á mikið af gamanmyndum??). Jákvæðni getur vissulega bætt líðan fólks… en að gefa (misgáfuðu) fólki svona hugmyndir er varla forsvaranlegt.

Í myndinni er líka vitnað í ýmsa hugsuði og vísindamenn (það er eiginlega skásti hlutinn af myndinni, að sjá þessar tilvitnanir, margar hverjar ansi góðar) en svo eru þeir bendlaðir við að hafa þekkt þetta ,,mikla leyndarmál“, að hugsa jákvætt fremur en neikvætt. Verra er þó að í myndinni er búið að aðlaga leyndarmálið að þörfum lata fólksins í dag, það á að vera nóg að óska sér og hugsa jákvætt um það sem mann langar að verða/eignast í staðinn fyrir að leggja vinnu í það.
Einhvern veginn efast ég um að það hafi verið aðferðin sem Einstein, Newton og Beethoven notuðu.

Vil taka það fram að ég var fyrirfram jákvæð fyrir myndinni (annars hefði ég varla eytt pening í að horfa á hana) og var með opinn huga framan af en mér var endanlega nóg boðið þegar farið var að röfla um læknavísindin, guð og álíka…

0 stjörnur.

Einnig er frábæra gagnrýni að finna hér.

Og hér.

Færeyingar eru almennt hressir með Björk sbr. þetta stórskemmtilega spjallsvæði.

Þetta hefur Arni! að segja: ,,Annars, so elski eg Bjørk nú. Respekteraði hana fyrr og dámdi nakrar av hennara sangum, men nú elski eg hana. Burdi keypt allar hennara fløgur. Nú manglar bara at hon spælir á G!”

Ekki eru þó allir sammála, amk. ekki hann LjótiSkóti:
,,At ein hálvgomul, íslendsk poppstjørna, sum hevði 5 1/2 hitt í 90unum hevur tveitt ein hysteriskan kukk inn í ein íslendskan konsertsal er ikki nóg mikið til at imponera meg. Eg meti meg persónliga at vera eitt sindur ov gamlan til at akta harraboðum úr einum landi, sum í stuttari lýsing svarar til ein fjarskotnan satellitfilipens á bulmikla norðuramerikanska likaminum, ein esjandi rektal pannukøka mannað við góðvarnum skuldarreyvum við nationalistiskum nalvapilkaríi sum tjóðarítrótt. [...]
Tó vil eg undirstrika, at eg ynski hasi ljótu konuni úr Sugarcubes alt ilt í framtíðini, og vónandi fer feski lorturin at floppa nakað so fyrimyndarliga. Fy for satan.”

Jahá, það vantar ekki mælskuna hjá frændum okkar!

————————————————-

Þið sem horfið á America’s Next Top Model vitið nú að það er óhjákvæmilegt að þegar einhver stelpnanna er fárveik en lætur sig samt hafa það að fara í fótósjút þá er hún undantekningarlaust með bestu myndina og fær mikið hrós í hattinn frá Tyru og co.
Mér líður svolítið eins í dag, ég píndi mig fárveik í próf um daginn… og fékk 9!
*dansar rassahristidansinn*

Úff hvað ég þoli ekki þegar ferðasögublogg sem ég nenni ekki að blogga stíflar bloggið mitt…

En ég var s.s. á Ítalíu 5.-16. mars, nánar tiltekið í Napólí (sem er skítug, troðin og ansi mögnuð) og Róm (sem er gúddsjitt og mig langar til að skoða betur). Við (15 manna hópur á vegum BEST) vorum lengst af í Napólí og gistum þar heima hjá ítölskum verkfræðinemum, við ansi misjafnar aðstæður. Sumir bjuggu við hótelaðstæður en aðrir kúldruðust í drullugum piparsveinaíbúðum dauðans. Ég var ein af þeim óheppnu… ógeðið sem óx á sturtuhenginu veldur enn martröðum hjá mér. En ekki orð um það meir.

Í Napólí var ýmislegt brallað:
-söfn, hallir og neðanjarðarhellar ógurlegir voru skoðuð
-djammað í hlíðum Vesúvíusar undir dynjandi túlkun ítalskrar rokkhljómsveitar á Sigur Rós
-gnocchi var útbúið undir handleiðslu ekta ítalskrar mömmu í sveitavillu með dásamlegu útsýni
-við fengum að leira!
-Totti og co. tóku íslenska BEST-landsliðið í boruna
-allir fengu kvef og hálsbólgu eftir heilan dag af labbi í hellirigningu… það var nefnilega ekkert svo hlýtt þarna þegar sólin skein ekki
-við kíktum á hressa dauða hórfólkið í Pompei
-umferðin í Napólí. Þú ert ekki söm manneskja eftir að hafa upplifað hana. Sérstaklega ekki í ofurbílnum Ítalans míns, sem var með óvirkum hurðum og megnri bensínstybbu. Eftir því sem leið á ferðina bættust í bílinn rauðvíns- og bjórstybba líka því við sem bjuggum hjá Tullio vorum alltaf svo hress. Við þreyttumst heldur ekki á því að segja honum íslenska brandara þegar við vorum í glasi. Honum var ekki skemmt.
-heppna fólkið sem var ekki lasið fór í svaka vínsmökkun og heimsókn til fallegrar eyju. Heppna fólkið var samt voða indælt og kippti með sér flösku af fínu víni handa lasna greyinu mér (thanks you guys!)
-étið: NUTELLA, samlokur með fullt af mozzarella og hráskinku, pasta, pizza, lasagne, tiramisú, litlir kolkrabbar, blóðappelsínur… og McDonalds

Allt í allt þá var lítið sofið og mikil keyrsla alla dagana. Við vorum í Róm í tvo daga og höfðum aðeins rólegri dagskrá þar en náðum þó að skoða: Colosseum, Fontana di Trevi, Vatíkanið, Péturskirkjuna (vaaaaáááá!), málaratorgið, Spænsku tröppurnar og þó nokkra írska pöbba. Í Róm borðaði ég besta pasta sem ég hef smakkað, það var fyllt með osti og perum og í rjóma-valhnetusósu. Ég bý mig undir að leggjast í gríðarlega tilraunastarfsemi í eldhúsinu til að geta búið til eitthvað svipað þessu sjálf… Borðaði líka frábæran ís rétt hjá Pantheon, súkkulaðiís sem var svo dökkur að hann var eiginlega bara svartur.

Ég tók eitthvað af myndum en ég er alveg ferlega löt í öllu svona myndadóti svo ég veit ekkert hvenær (og ef) þær fara á netið. Áhugasömum er bent á síðuna hennar Þuru, hún var nefnilega í Róm og Pompei 2 dögum á eftir mér og hún tók glæsilegar myndir af öllu þessu helsta. Bætið nokkrum kg á hana og gleraugum og þá er eins og ég sé þarna komin ljóslifandi.

Annars er ég bara komin í próflestrargírinn, tæplega mánuður í fyrsta próf og allsvakalegur hressleiki í gangi. Ég er hægt og rólega að gera mér grein fyrir því að ég er að fara að útskrifast með B.S. í lyfjafræði í júní og byrja í mastersnámi í haust, better recognize!

Bangsi bestaskinn!

Þvílík yndisleg nostalgía… aðra uppáhaldsþætti mína má sjá hér og hér.

Ég fór í frábært partý á laugardaginn síðasta, ég man ekki eftir að hafa nokkurn tíma dansað svona mikið… Teitið samanstóð af BEST fólki og var haldið hjá þeim heiðurshjúum Hrönn og Sigurði Gísla. Úff hvað það verður gaman að fara til Ítalíu með þessu fólki!
Í næstu viku: fyrirlestur, þjóðdansanámskeið, síðasti verklegi tíminn, rauðvínshittingur þar sem “Icelandic Evening” verður planað, árshátíð og dekur á laugardaginn, Ítalía á mánudagsmorguninn eftir það. Og já, ætli maður þurfi ekki að reyna að læra svolítið líka. Ég opnaði 3 kg lyfjaefnafræðibókina mína í gærkvöldi í fyrsta sinn, það er allavega byrjunin.

En þessa helgi ætla ég að gera svolítið sem ég hef ekki gert síðan fyrir jól.
Hitta fjölskylduna mína… og núna ætla ég að monta mig af því hvað ég á sætar systur.

Guðný og Marín

Herd�s

Herdís skvísa

Verst að ég er hrædd um að lyfjaefnafræðibókin þurfi að vera samferða í sveitina. Eins gott að það þarf ekki að borga yfirvigt í rútu…

Nú eru lítill sætur hvolpur og lamb notuð til auglýsa vinsælar týpur af salernispappír… ég hélt að Gargantúi (eða var það Pantagrúll?) hefði komist að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að best af öllu væri að skeina sig á gæs. Ég efast þó ekki um að hvolpur og lamb séu bæði mjúk og hlý og ef til vill auðmeðfarnari en gæsir, þær eiga það víst til að vera geðvondar og bíta.

Hmm, þetta er verðugt efni í klíníska rannsókn. Gæti orðið erfitt að hafa hana tvíblinda þó.
Einhverjir sjálfboðaliðar?

puddapudd

 

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« mar    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  

Blog Stats

  • 8,052 hits

a