Fór í göngutúr áðan, mjög gaman að upplifa hvað borgin var hljóðlát. Í lengri tíma sá ég engan á ferli, sá enga bíla og veðrið var meira að segja alveg kyrrt. Eins og allt lægi í dvala eða héldi niðri í sér andanum.
Ég sá einn vinnandi mann, bíllinn hans var einn á bílastæðinu fyrir utan Kaupþing í Borgartúninu og þar inni sat hann með tölvunni sinni.
Síðan uppgötvaði ég hvað ég er lítt kristilega þenkjandi þegar ég sá fána dreginn í hálfa stöng fyrir utan fyrirtæki og það fyrsta sem ég hugsaði var: ,,Ætli það sé verið að jarða fyrrverandi starfsmann í dag?…”
En jæja, gleðilegan meint-afkvæmi-himnadraugs-var-neglt-uppá-prik-fyrir-langalöngu-síðan föstudag!
Ætla að fá mér pasta í tilefni þess…

1 comment
Comments feed for this article
25 mars, 2008 kl. 8:31
Gudny
Gledilega påska