Ég sé mig knúna til þess að tilkynna það að ég hef aldrei verið meira klædd á ævi minni.
Ég er í:
nærfötum
þykkum sokkabuxum
náttbuxum
þykkum sokkum
dúnsokkum
hlýrabol
stuttermabol (sem er með binary á)
flíspeysu
flísslopp
undir teppi
og sæng

Hress

Og er með þvílíkan hroll.
Jebb, ég er lasin, þetta er sú tegund af veikindum þegar maður kvíðir því að fara á klósettið því þá þarf maður að girða niður um sig og setjast á (að manns mati) ískalda klósettsetu og er í hálftíma að losna við kuldahrollinn á eftir.
Það versta sem ég gæti hugsað mér væri að fara í sturtu, ég myndi skjálfa til dauða.
Og það að fara fram og hita sér te verður að heilmiklum heilabrotum og brasi.
Ég vil ekki spila tölvuleiki, það er of krefjandi og erfitt.
Ég reyndi að setja í uppþvottavél áðan og gafst upp, þurfti að setjast niður og hvíla mig.

Auðvitað gerist þetta svo á sama tíma og öll skólaverkefni ættu að vera í vinnslu, átti að flytja fyrirlestur í morgun, verklegt á föstudaginn, skila lokaskýrslu á mánudaginn, 30 % ritgerðaskil og próf á föstudaginn í næstu viku…

Hvers vegna ég finn mig knúna til að deila þessu með þeim örfáu sem kynnu að villast inná þessa síðu, það er dularfullt…