You are currently browsing the monthly archive for desember 2007.

Búin í prófum í dag, mikið afskaplega er það nú alltaf gott.
Auðvitað af því að líðanin á prófatímabilinu er alltaf frekar tæp, svefnmálin í rugli, bakverkur af maraþonsetum og stress… kom sjálfri mér reyndar rækilega á óvart og var frekar lítið stressuð aldrei þessu vant. Ekki vegna þess að ég kynni námsefnið vel, heldur nennti ég bara ekki að stressa mig á því. Átti síðan spretti þar sem las eins og óð manneskja á milli þess sem ég tók letiköst….
Eruð þið hissa á því að ég hafi ekki bloggað fyrr? Þakkið bara ykkar sæla, djöfull er maður leiðinlegur og óáhugaverður í prófum, ég get varla tvinnað saman orð í skiljanlega setningu, er a.m.k. fimm mínútur að fatta einföldustu brandara, fæ reglulega störu þar sem ég stari á vegg, niðursokkin í djúpar hugsanir um minoxidil og Duros, gott ef feitur slefdropi lekur ekki laumulega niður hökuna við sömu tækifæri.

Stundum gleðst maður þó óvænt yfir litlum hlutum, t.d. þegar ég var að leita að upplýsingum um hvað skammstöfunin PEEP þýddi (positive end expiratory pressure) en Wikipedia beindi mér beint inn á þessa síðu. Og frá henni fór ég beint yfir á þessa, þá var nú gaman.

peeps

Get ekki sagt annað en að það sé bara heljarinnar afrek að hafa lifað þessa önn dauðans af með þokkalegar einkunnir og enn svona tiltölulega heil á geðsmunum… svona fyrir utan fáránlega súra drauminn sem mig dreymdi um daginn. Ég veit reyndar fátt leiðinlegra en að lesa blogg um drauma sem þennan eða hinn dreymdi og geri það yfirleitt ekki en miðað við hvað Svanhvíti fannst sagan fyndin í morgun þá læt ég vaða:

Mig dreymdi semsagt að móðir mín, þessi elskulega og litla fíngerða kona, hefði myrt bæði afa minn og Atla Viðar. Þetta gerði hún af þeirri ósköp einföldu ástæðu að hún sá svo agalega spennandi uppskrift í Gestgjafanum að mannagraut fyrir jólin. Hún ákvað að prófa bæði að nota gamalt kjöt og nýtt kjöt til að fá samanburð og sýndi mér ofan í potta tvo þar sem grauturinn kraumaði, ekki ósvipaður bleikum grjónagraut. Með rúsínum, að sjálfsögðu. Svo lýsti hún fyrir mér hvernig hún hefði myrt mennina, hún semsagt plataði þá út í bílskúr og notaði tækifærið þegar þeir litu við og greip þá þá hálstaki aftan frá og kyrkti. Svo klykkti hún út með orðunum: ,,Já Atli Viðar var nú fínasti piltur en hann gat nú ekkert í sjálfsvörn!”


Ég afsala mér allri ábyrgð af þessum ljótu draumförum og kenni of stórum skammti af þvagræsilyfjum, negatívum inótrópum og hlaupmyndandi fjölliðum alfarið um. Lestri um þessi efni, altsvo.

Að lokum vil ég benda á þetta vídjó.

Tvenns konar getgátur eru í gangi um hvað þetta myndbrot eigi að fyrirstilla.
a) ástandið inni í hausnum á Elínu í prófageðveikinni
b) myndbandið var tekið upp í Haga núna í kvöld þegar Páll, Jón Pétur, Viktor og Atli fögnuðu próflokum á einlægan hátt.

Glædelig jul.

 

desember 2007
M Þ M F F L S
« nóv   mar »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Blog Stats

  • 8,073 hits

a