Það sem ég hef gert undanfarið:
*farið í helst til dramatískt brúðkaup sem fól í sér spítalaferð brúðhjónanna en endaði þó sem betur fer vel
*útskrifast með B.Sc. gráðu í lyfjafræði í lítt dramatískri athöfn
*verið hrædd um að hrasa uppi á sviði í téðri athöfn í nýju hælaháu skónum mínum
*verið á veitingastað frá 18:30 til 3 um nótt og borðað ævintýralega fínan mat
*horft á Godfather 1 og 2 í skvilljónasta sinn
*verið hundskömmuð af gamalli kerlingu í bleyju og næstum barin með hækjunni hennar
*lesið Harry Potter 6
*drukkið Mozartkúlukokteil í boði Þuru ofurgestgjafa
Á morgun stefnir í að ég planti út sumarblómum, máli og taki til. Sparsla ef til vill upp í hrukkurnar í leiðinni, horfi á Spaugstofuna og kaupi samstæða jogginggalla fyrir okkur hjúin.
Jahá, líf og fjör var það heillin.

5 comments
Comments feed for this article
25 júní, 2007 kl. 21:15
Guðný
Áttu ekki einhverjar myndir frá stóra deginum? Langar að sjá hæla skóna
leiðinlegt að missa af þessu, mæti næst
Ciao bella!
27 júní, 2007 kl. 12:07
Begga frænka
Til hamingju með útskriftina…
Hefði viljað sjá þetta atvik með gömlu konuna í bleyjunni og með hækjuna he he
2 júlí, 2007 kl. 10:33
Elín
Guðný: eitthvað er víst lítið um myndir og örugglega engar af skónum… gæti samt reynt að finna eitthvað til að senda þér
Begga: Takktakk! Og trúðu mér, þú hefðir ekki viljað sjá þetta, þetta var ekki fallegt!
3 september, 2007 kl. 23:33
Ellan
Jæja, Elín mín. Kannski kominn tími á smá blogg ???
11 september, 2007 kl. 17:48
Elín
Já, veistu, ég er bara alveg hjartanlega sammála… geri það þegar ég rís úr hitamókinu sem ég er í akkúrat núna…