Man eftir því að hafa lesið um úgglenska konu sem var að hita vatn í bolla í örbylgjuofni, svo tók hún bollann út og stuttu síðar sprakk heita vatnið yfir hana… hélt nú alltaf að þetta væri hálfgerð flökkusaga en lenti sjálf í bráðri lífshættu rétt áðan þegar ég var að hita afganginn af góðu tælensku kjúklingasúpunni minni, tók hana sjóðandi út úr örbaranum og svo bara púff! Bolurinn minn fékk á sig nokkra væna dropa en ekki nóg til að brenna mig (mikið, það var samt pínu áts). Svo börnin góð, góð regla er að láta hitaðan vökva í örbylgjuofni sitja þar í ca. 10 sek eftir upphitun, ef hann skyldi nú springa.
Við Steinar erum annars búin að vera að prófa okkur aðeins áfram í tælenskri eldamennsku, það er gaman. Í Mai Thai búðinni á Hlemmi er m.a. hægt að kaupa rosa sniðugt kit með algengasta ferska kryddinu eða kaffír lime laufum, sítrónugrasi, galangal og chili. Bætir síðan við kókosmjólk… og þá ertu komin langleiðina að súpunni góðu (tom kha gai). Ef eldamennskunenna er ekki fyrir hendi þá mæli ég heilshugar með tom kha súpunni á Krua Thai.

Annars er ég núna að leysa af konuna í vinnunni sem sér um að keyra út heimsendingar þannig að ég fæ að krúsa um bæinn á sendiferðabíl. Það er ansi holl reynsla, sérstaklega fyrir mig þar sem ég rata ekki neitt. Eða svona næstum ekki neitt, núna rata ég allavega á Klepp, það er ágætis byrjun ;)