Jæja, prófin búin og tókust bara ljómandi vel. Ég er byrjuð að vinna, nánar tiltekið í apóteki. Þangað kemur mikið af krúttlegu gömlu fólki. Ég er ennþá að venjast því að vinna 9 tíma vinnudag standandi í fæturna, er alltaf alveg rosalega þreytt á kvöldin.
Annars líst mér bara mjög vel á sumarið framnundan, það sem planað er hingað til er brúðkaup hjá Stínu frænku, útskrift 16. júní (engin veisla, bara fínt út að borða með familíunni), humarhátíð á Höfn og Parísarferð í ágúst. Svo ætla ég líka að vera dugleg að hlaupa… kom sjálfri mér á óvart um daginn og tókst að vakna eldsnemma og fara í ræktina fyrir vinnu, þvílíkur hressleiki!

Annars er ég bara fullkomlega andlaus og þreytt, þetta er bara svona status-blogg. Bleeee…