You are currently browsing the monthly archive for febrúar 2007.

Ég fór í frábært partý á laugardaginn síðasta, ég man ekki eftir að hafa nokkurn tíma dansað svona mikið… Teitið samanstóð af BEST fólki og var haldið hjá þeim heiðurshjúum Hrönn og Sigurði Gísla. Úff hvað það verður gaman að fara til Ítalíu með þessu fólki!
Í næstu viku: fyrirlestur, þjóðdansanámskeið, síðasti verklegi tíminn, rauðvínshittingur þar sem “Icelandic Evening” verður planað, árshátíð og dekur á laugardaginn, Ítalía á mánudagsmorguninn eftir það. Og já, ætli maður þurfi ekki að reyna að læra svolítið líka. Ég opnaði 3 kg lyfjaefnafræðibókina mína í gærkvöldi í fyrsta sinn, það er allavega byrjunin.

En þessa helgi ætla ég að gera svolítið sem ég hef ekki gert síðan fyrir jól.
Hitta fjölskylduna mína… og núna ætla ég að monta mig af því hvað ég á sætar systur.

Guðný og Marín

Herd�s

Herdís skvísa

Verst að ég er hrædd um að lyfjaefnafræðibókin þurfi að vera samferða í sveitina. Eins gott að það þarf ekki að borga yfirvigt í rútu…

Nú eru lítill sætur hvolpur og lamb notuð til auglýsa vinsælar týpur af salernispappír… ég hélt að Gargantúi (eða var það Pantagrúll?) hefði komist að þeirri niðurstöðu á sínum tíma að best af öllu væri að skeina sig á gæs. Ég efast þó ekki um að hvolpur og lamb séu bæði mjúk og hlý og ef til vill auðmeðfarnari en gæsir, þær eiga það víst til að vera geðvondar og bíta.

Hmm, þetta er verðugt efni í klíníska rannsókn. Gæti orðið erfitt að hafa hana tvíblinda þó.
Einhverjir sjálfboðaliðar?

puddapudd

Fimmta manneskjan til að linka rétt á mig var hún Guðbjört og því fær hún heiðurinn af síðasta heiðursblogginu.
Guðbjört ólst upp með okkur Svanhvíti í Laugarási en þar sem hún er einu ári eldri var ég ekki í jafn miklum samskiptum við hana strax. Seinna urðum við þrjár perluvinkonur og mynduðum hin stórskemmtilegu félagasamtök GES, þegar við vorum ca. 11-12 ára. Fundir GES gengu út á að hittast heima hjá einhverri okkar, borða nammi eða baka og kjafta. Seinna kynntist ég svo fyrsta kærastanum mínum í gegnum Guðbjörtu, þegar ég var 14 ára… þegar hún var búin að fullvissa mig um að hún væri ekki nógu skotin í honum og ég mætti fá hann, hehe.
Guðbjört

Guðbjört fór síðan í Verzló og var á tímabili fullmikil Verzlópæja fyrir minn smekk. Eitt sinn þegar ég var í 10. bekk kom ég nefnilega til Reykjavíkur að heimsækja hana yfir helgi en þannig var mál með vexti að henni var boðið í svaka VIP Verzlópartý um kvöldið og það mátti sko alls ekki taka gesti með… og það endaði þannig að hún fór í partý en ég sat eftir heima og horfði á vídeó með bróður hennar!
Tilþrif við sönginn, hehe
Guðbjört er annars klárasta stelpa sem ég þekki en samt á hún það stundum til að vera algjör ljóska ;) . Hún er ævintýralega hress, yfirleitt í góðu skapi og kemur manni alltaf í gott skap. Hún er tónlistarmaður sem spilar bæði á píanó og syngur eins og engill (Pie Jesu, anyone?) Hún er eina vinkona mín sem er gift, hún giftist honum Árna sínum við rosalega fallega athöfn í sumar, ég grét og grét eins og ég veit ekki hvað. Við höfum því miður ekki verið nógu duglegar að hittast en alltaf þegar við hittumst er það rosa gaman… reglulegir hittingar voru komnir á dagskrá með bókaklúbbnum okkar Kókablúbb og vonandi verður hann endurvakinn þegar hún og Helgurnar tvær koma til baka frá útlöndum. Núna er hún klára Guðbjört mín á svaka styrk í masters/doktorsnámi í fjármálastærðfræði í Flórída innan um krókódílana. Þegar hún kemur svo að lokum heim frá Bandaríkjunum þá munu helstu bankar og stórfyrirtæki vafalaust slást um hana… þessi unga kona á framtíðina fyrir sér. Og svo er ég alveg viss um að hún og Árni munu eignast alveg svakalega sæt börn þegar þar að kemur, þau eru bæði svo myndarleg. Sjáið bara hvað hún og bróðursonur hennar eru alveg eins og algjör krútt!

Í þetta sinn er komið að því að blaðra ofurlítið um hana Svanhvíti mína Lilju.
Hvernig byrjar maður annars að tala um manneskju sem maður hefur þekkt, tja, álíka lengi og foreldra sína? Foreldrar Svanhvítar og pabbi minn voru saman í Garðyrkjuskólanum í denn og síðan höfum við Svanhvít lengst af verið nágrannar í hinu yndislega sveitaþorpi Laugarási. Sem litlir grislingar þá brölluðum við ýmislegt sniðugt, ég man t.d. eftir ansi lífseigum drullumallsleik sem gekk út á að ég var dreki sem var eins konar konfektgerðarmeistari og svo lét ég grey Svanhvíti vera aðstoðarmann drekans og sendi hana til að ná í mold og svoleiðis fyrir framleiðsluna, drekasúkkulaði. Við höfum fylgst að í gegnum öll möguleg skólastig og alltaf verið í sömu skólum þó að við höfum valið mismunandi námsbrautir frá og með menntaskóla.
SnakkstelpurHoppistelpur

Svanhvít er ekki fyrirferðarmikil en verður auðveldlega miðpunkturinn í þeim félagsskap sem hún er í, hvort sem það er vinahópurinn, íslenskan eða hinar og þessar tónlistargrúppur. Hún er ráðagóð, hugrökk, listræn, gífurlega klár og fyndin. Auk þess er hún hagmælt og drengur góður. Hún prjónar, saumar og bakar eins og það væri enginn morgundagur og það er alltaf gaman að koma í heimsókn til hennar. Hún verður ofuramma í framtíðinni.
Ofuramma sem talar milljón tungumál.
Bjór!
Svanhv�t

Eins og allir þekkja þá er það bara náttúrulögmál að allt gerist alltaf á sama tíma… þessa helgi eru lybbaleikar á laugardaginn og það hefði verið rosa gaman að fara á þá (3. árið þarf náttúrulega að halda uppi orðspori sem sigurvegarar… ) og svo er líka svona ansi skemmtilegt búningaþema fyrir mitt ár, sjóræningjar!
hress
Einnig er 25 ára afmæli hjá henni Auði (sjá fyrsta heiðursbloggið) og það hefði nú ekki verið leiðinlegt að kíkja þangað.
En þessa mögnuðu viðburði var ég búin að ákveða að leiða hjá mér og fara í staðinn út á land að hitta elskulega foreldra mína og fjölskyldu sem ég hef ekki hitt síðan fyrir jól og kíkja síðan í þrítugsafmæli og tónleika hjá honum Agli tenór frænda mínum (sem var einmitt að syngja með sinfóníunni um daginn og í Kastljósinu í gær).
En í staðinn sit ég heima með hor í nös, hita og höfuðverk og er bara ekki að fara að gera neitt skemmtilegt… var búin að vonast til að sleppa við þessa pest þar sem Steinar er búinn að vera lasinn alla vikuna og ég hafði enn ekki smitast.
achoo

Annars er búið að vera mikið að gera, fyrirlestur og ritgerðaskil á þriðjudaginn (núna veit ég allt um ofnæmispróf) og mini-fyrirlestur auk heimsóknar uppá spítala í gær (þar sem við fengum að sjá nýskorinn, ferskan eggjastokk með hárugu æxli og mann að skera brjóst á skurðbretti) auk hefðbundinna skýrsluskila í verklegu. Svo er ég líka búin að ákveða að skella mér til Ítalíu með BEST 5. – 16. mars, úff hvað ég held að það verði gaman!
Svo verð ég ein í kotinu alla næstu viku þar sem Steinar er að fara á námskeið vegna vinnunnar í Osló.
Jæja, best að glápa á svosem einn Grey’s anatomy… lenti nú í því um daginn að sjá þátt sem fjallaði nákvæmlega um það sem ég var að gera fyrirlestur um (fyrirbyggjandi skurðaðgerðir vegna brjóstakrabbameins) þannig að það má segja að ég sé bara að fara að læra… kannski *hóst hóst*.

Kona dagsins í dag er hún Þura mín.

Þura v�sindamaður!

Hún gerir allt (og þá meina ég allt nema koma nakin fram, og þó) fyrir gott blogg. Hún er vísindamaður par excellance og á bikar til að sanna það. Hún var fædd með bleikan harðplasthjálm á hausnum. Hún er besti driver í heimi (TM) og hefur ekið mér ófáa hringina kringum landið. Ég er eiginlega á því að hringferðin okkar kringum landið í ágúst 2003 (var það ekki örugglega 2003?) hafi verið besta ferðalag fyrr og síðar, með besta veðri ever. Hún er dead foxy. Ég man því miður ekki nákvæmlega hvernig ég kynntist Þuru fyrst, ég kynntist henni einhvern veginn smátt og smátt í gegnum Svanhvíti á fyrsta ári í MH en síðan vorum við saman í næstum öllum tímum á hinni sögufrægu eðlisfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð (RIP). Við höfum átt ófáar nánar og innilegar stundir með honum elsku Þórarni okkar.

Þura

Stundum minnir Þura mig á Leelu, hardcore gelluna í Futurama. Þura er eina manneskja sem ég þekki sem gæti verið kick-ass geimskipstjóri og gella á sama tíma!

Captain Leela

Kona dagsins í dag er hún Elínborg Kristjánsdóttir aka Ella sprella.

Ella s�n

Þetta er nokkuð lýsandi mynd fyrir hana þar sem hún er iðulega hress, brosandi og yfirleitt til í hvað sem er. Hún fer rosa oft í klippingu og er ekki hrifin af grænmeti. Hún er lykilmeðlimur í einstæðingasamtökunum S&F (Single & Fabulous) og er svo harður bootcampari að hún gæti eflaust hlaupið tuttugu ferðir upp og niður stigann í Haga með mig í fanginu.
Við erum saman á ári í lyfjafræðinni og ég kynntist henni fyrst í verklegu í Almennri efnafræði 1. Ég þekkti engan en fannst þessi stelpa svo vinaleg og hress að ég spjallaði við hana um eitthvað (vafalaust nýnemadjammstengt). Síðan djömmuðum við feitt á nýnemadjamminu 2003. Good times.

Pepsi Max

Einu sinni drakk Ella mikið af Pepsi Max en núna er hún hætt…
(myndin er fengin af nataliedee.com)

UPDATE: ég var lengi í gær að browsa myndir á netinu að reyna að finna góða mynd af okkur Ellu saman. Áðan fann ég bestu mynd í heimi!
Ella og ég gfurlega hressar

Þarna má sjá okkur í pásu í síðasta verklega lífræna tímanum, aðeins of uppteknar við að kjamsa á nammi…

Kona dagsins í dag er hún Auður því hún er fyrsta manneskjan til að linka á mig hérna á nýja fína staðnum! Þess vegna er hún komin hérna í heiðurssæti í dálknum til vinstri, ekki þið.

F�n og sæt

Auður er hress og skemmtileg stelpa sem elskar maríuhænur og bjór. Hún parlar frönsku og les bækur og vinnur á bókasafni. Hún drekkur líka kaffi og hjólar. Hún hlustar á skemmtilega tónlist, m.a. gamlan söngkonujazz en það finnst mér líka gaman. Ég kynntist Auði fyrst í gegnum Áslaugu og ég man að ég var pínu hrædd við þær fyrst.

Ég gæti vel hugsað mér að skrifa svona heiðursblogg daglega um þá fimm fyrstu sem ómaka sig við að linka á mig… eftir hverju eruð þið að bíða?

 

febrúar 2007
M Þ M F F L S
« jan   mar »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728  

Blog Stats

  • 8,073 hits

a