You are currently browsing the monthly archive for janúar 2007.
Jæja, fékk að lokum alveg nóg af þessu blogger rugli. Dæmigert að þeir geri mér að lokum þann óleik að ég get ekki importað póstana af gamla blogginu hingað því ég var búin að skipta yfir í nýja blogger með Google aðgangi… en hver nennir að lesa um það?
Hérna kemur allavega Kúbubloggið góða (sem ég var, þrátt fyrir fögur loforð, ekki búin að skella inn á heimasvæðið mitt).
Við erum komin aftur frá svaðilför til Kúbu. Þetta var mjög fín ferð og við náðum okkur bæði í einhvern lit án þess þó að liggja mikið í sólböðum – það var eiginlega einfaldega of heitt, 30 stiga hiti dag eftir dag… Við vorum semsagt í eina viku í Havana (á Hotel Occidental Miramar) og eina viku í Varadero (á Hotel Arenas Doradas), sem er svona túrista-sólbaðsströnd.
Annars nenni ég engan veginn að skrifa einhverja komplett ferðasögu. Punktablogg gefast annars alltaf vel:
*Landið kom á óvart. Þrátt fyrir allar sögurnar og myndirnar sem maður hefur séð þá er bara allt annað að sjá þetta með eigin augum, niðurnídd húsin, hresst fólkið sem situr alls staðar fyrir utan húsin sín að spjalla, tónlistarmennina, skorturinn (ég sá aldrei ferska mjólk þarna úti og grænmeti var af gífurlega skornum skammti, þrátt fyrir að það ætti að vera auðvelt að rækta það.)
*Maturinn: við vorum búin að búast við hálfóætum mat miðað við sögurnar sem maður hafði heyrt en hann var alls ekki það slæmur. Allavega vel ætur og bara nokkuð góður á seinna hótelinu sem við vorum á. Þó er ýmsu ábótavant í meðhöndlun á mat þarna og auðvelt að fá í magann, jafnvel á hótelunum. Eftirminnilegasta matarreynslan var eiginlega að fara á heimaveitingastað (paladar), þar sátum við í mjög fallegum garði undir vínvið ásamt einu öðru pari og unglingsstrákurinn á heimilinu þjónaði okkur, ferlegt krútt greyið. Maturinn var einnig mjög ódýr en frekar bragðlaus… eins og var algengt þarna. Ég keypti mér samt einu sinni humar sem kostaði 30 CUC (ca. 2000 kr) … en það eru mánaðarlaun læknis á Kúbu. Á móti kemur að humarinn sem læknirinn kaupir sér kostar kannski í rauninni 1,5 CUC (eða 30 CUP)… þetta tvöfalda hagkerfi er nú meira ruglið.
*Drykkurinn: er klárlega romm… Kúbanir spara sko ekki rommið í kokteilana sína, Cuba Libre var t.d. ca. 60% romm á móti 40% kóki… enda er kókið dýrara en rommið. Mojito-arnir voru svo sterkir að það var oft erfitt að drekka þá. Besti drykkurinn að mínu mati var Pina Colada Especial (á lobbybarnum á Arenas Doradas hótelinu), sem var með smá kúbönskum kakólíkjör út í… mmmm. En okkur fannst afar skrítið að fá yfirleitt ískalt rauðvín, a.m.k. á fínni veitingastöðunum. Það er kannski einhver hefð í svona heitum löndum, ekki þekki ég það. Svo drakk maður líka svolítið af kúbönskum bjór, Cristal og Bucanero, þeir voru ágætir.
*Tungumálið: ég gat eitthvað aðeins notað menntaskólaspænskuna mína, það var t.d. sterkur leikur að spyrja leigubílstjóra alltaf fyrirfram á spænsku hvað ferðin myndi kosta ca., þá reyndu þeir ekki að svindla á manni. Svo borðuðum við tvisvar á veitingastöðum þar sem starfsfólkið talaði bara spænsku og matseðlarnir voru á spænsku sömuleiðis, þá var ágætt að geta bjargað sér. En spænskan mín er því miður ekki nógu góð til þess að ég geti spjallað mikið við fólk, það hefði nú alveg verið gaman. Þeir Kúbubúar sem gáfu sig að tali við mann að fyrra bragði voru bara að sníkja pening. Mér fannst mjög fyndið þegar voða fínt klædd eldri kona gaf sig að tali við mig fyrir utan súpermarkaðinn í Havana og vildi að ég gæfi sér pening fyrir leigubíl…
*Vonbrigði ferðarinnar: eiginlega hin fræga ísbúð Coppelia. Allt öðruvísi en við bjuggumst við, öryggisvörður bannaði okkur að fara inn á aðalsvæðið þar sem Kúbubúarnir og stemmningin er því við vorum ekki með gjaldmiðilinn sem þeir nota (moneda nacional) en í staðinn máttum við fara á pínulítið útikaffihús þar sem bara voru túristar. Ísinn var samt góður.
Einnig var fúlt að komast ekki í vindlaverksmiðju, reyndum tvisvar en í bæði skiptin var lokað. Og svo var Arenas Doradas hótelherbergið ansi lélegt miðað við hitt hótelið, m.a. loftkæling sem ekki var hægt að stilla (var bara ísköld) og gífurlega hávær lítill ísskápur og svo var frekar sóðalegt líka, allt út í ryki.
*Það sem var best: að skoða Havana (fórum eftir skoðunartúrum sem voru í Lonely Planet bókinni okkar), mæli með Capitolio, Byltingarsafninu, Byltingartorginu, Dómkirkjutorginu…. og já, bara því að skoða mannlífið.
Einnig var ansi gaman að snorkla í bátsferðinni sem við fórum í seinasta daginn okkar, hef aldrei prófað það áður en þarna gat maður séð kóralrif og skrautlega fiska o.s.frv.
Svo var ströndin í Varadero bara hreint yndi og ekkert síðri á kvöldin, það var alveg frábært að rölta meðfram henni og ekki verra að skella sér aðeins út í sjó og skoða stjörnurnar, mjög stjörnubjart þarna.
Við Steinar erum ekki duglegasta fólk í heimi að taka myndir, gleymdum oft myndavélinni heima og svona… en eitthvað tókum við samt og ég skellti upp myndasíðu með einhverju úrvali. Skrifaði einnig athugasemdir við myndirnar svo það er einskonar ferðasaga. Voða gaman að dúlla sér í þessu þegar maður ætti eiginlega að vera að læra – eða ryksuga.
En núna er skólinn byrjaður aftur á fullu, mér gengur reyndar ekki alltof vel að mæta því að ég er ennþá stillt inn á Kúbutíma, ég sofna s.s. kl. 5 á morgnana… en þetta reddast.

Nýleg ummæli